Þjóðgarðar í Þýskalandi

Eftir nokkra góða daga í Rauris með góðum gestum þá hélt ég áleiðis til Þýskalands. Stefnan var tekin á Bayerishe Nationalpark, sem er stór þjóðgarður í Bæjaralandi í suðurhluta Þýskalands. Ég keyrði til Passau og þaðan í átt að Tékklandi og gisti á Knaus tjaldstæði rétt hjá landamærunum. Þá hjólaði ég upp að Dreisessel sem er magnaður staður í skóginum, upp á fjalli með útsýni til þriggja landa, Þýskalands, Austurríkis og Tékklands.

Því næst heimsótti ég Nationalparkzentrum Lusen sem er í sama þjóðgarði. Þar eru gönguleiðir um allan skóginn og þekktast er kennileiti sem er hár turn sem er einskonar spírall hægt er að ganga upp í. Göngustígur að turninum er eftir háum trépöllum þar sem hægt er að virða fyrir sér útsýnið yfir skóginn, mjög skemmtileg leið með fróðleik um lífið í skóginum og einnig ratleik fyrir börn.

Næsti áfangastaður var Bodenmais, sem er einnig í þjóðgarðinum en bærinn er þekktur fyrir glerframleiðslu. Þar gisti ég á nýju glæsilegu tjaldstæði í bænum, með því flottasta sem ég hef séð. Þá hjólaði ég að glerverksmiðjunni Joska, og það var upplifun að koma þar inn og einnig að skoða allt glerskrautið á svæðinu, bæði inni og úti.

Næst er ferðinni heitið til Tékklands og þaðan til Póllands.

Leave a Reply

Discover more from husbill.com

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading