Hjólað í Austur-Tyrol

Síðustu daga hef ég verið að ferðast um Austur-Tyrol í Austurríki. Ég keyrði frá Rauris til Mittersill og þaðan inn Felbertauern dalinn, beint í suður. Þar stoppaði ég hjá fallegu vatni sem heitir Hintersee og er partur af Hohe Tauern þjóðgarðinum. Ég fór í göngutúr kringum vatnið og keyrði síðan áfram í suðurátt í gegnum Felbertauern göngin.

Þegar þaðan er komið blasir við Austur-Tyrol (Osttyrol) en það er lítið hérað í Austurríki sem er frekar afskekkt. Þar eru nokkrir dalir sem eru illfærir á veturna og ég ákvað að keyra inn dal sem heitir Kals-dalur. Mjög fallegur dalur og ekki mikil umferð ferðamanna, en núna er háannatími og margir þekktir staðir sem eru þéttsetnir ferðamönnum.

Við suðurenda Felbertauerntunnel

Eitt af mínum markmiðum í ferðinni er að fara á fámenna staði og Kals dalurinn er einn af þeim. Þegar keyrt er upp í dalinn er krókóttur fjallvegur upp hlíðina þangað til komið er inn í dalinn. Stórkostlegur staður og náttúfegurð mikil.

Ég fór á tjaldstæði sem er innst í dalnum og ákvað að vera í tvær nætur. Þetta tjaldstæði er inní skógi með stórkostlegu útsýni til fjalla. Fyrsta daginn hjólaði ég um nágrennið og daginn eftir fór ég langan hjólatúr inn Kals Glocknerstrasse, alveg mögnuð leið, að Lucknerhütte sem er í 2.241 m hæð.

Eftir tvo daga í Kals dalnum þá keyrði ég áfram um fjöllin og fór inn lítinn dal sem endar á Ítalíu. Á leiðinni stoppaði ég, tók hjólið af bílnum og hjólaði inn þröngan dal, Defereggental, sem ég hafði lesið mér til um að væri að finna gömul veiðihús, Jagdhausalm, staður sem væri oft kallaður Tíbet í Ölpunum. Þetta var alveg magnaður staður, lengst inn í óbyggðum, í yfir 2000 m hæð.

Jagdhausalm er í Hohe Tauern þjóðgarðinum og er einn af elstu alpabeitilöndum Austurríkis. Það samanstendur af 16 steinhúsum og kapellu og er oft nefnt „Litla Tíbet“ vegna útlits þess. Svæðið þekur alls um 1750 ha og er í eigu landbúnaðarsamfélags með 15 meðlimi, sem allir koma frá Suður-Týról sem tilheyrir Ítalíu.

Myndband af leiðinni að Jagdhausalm

Frá Austur-Tyrol hélt ég til Ítalíu og keyrði þar og hjólaði um Ítölsku Alpana. Meira um það í næsta bloggi.

Husbill_vanlife á Instagram

Á Instagram síðunni reyni ég að setja inn myndir daglega https://www.instagram.com/husbill_vanlife/

Husbill_vanlife á YouTube

Ég hef tekið slatta af myndböndum og set þau jafnóðum og ég er búin að klippa þau, inn á myndbandarásina á YouTube

Leave a Reply

Discover more from husbill.com

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading