Undirbúningur

Nú styttist í Evrópuferðina og undirbúningur í fullum gangi. Það er ýmislegt sem þarf að athuga áður en lagt er af stað í ársferð og eitt af því sem ég hef verið að gera undanfarið ár er að afla mér upplýsinga um áfangastaði með því að lesa bækur, skoða vefsíður, horfa á myndbönd og rýna í kort.

Bækur og tímarit

Síðustu ár hef ég keypt mér slatta af bókum og tímaritum til að lesa við undirbúning ferðarinnar. Bækurnar eru bæði fræðslubækur um húsbíla og ferðabækur. Einnig ferðasögubækur þar sem fólk segir frá sinni reynslu af húsbílalífi. Bækurnar hef ég ýmist keypt á Amazon eða í bókabúðum erlendis. Hér er dæmi um bækur og tímarit sem mér finnst gagnleg.

  • Lonley Planet ferðabækurnar. Mjög greinargóðar og fróðlegar lýsingar á athyglisverðum stöðum í hverju landi. Ekki mikið af myndum heldur er meira lagt upp úr fróðleik. Lonley Planet ferðabækurnar eru að mínu mati langbestu ferðabækurnar á markaðnum í dag. Þær eru einnig hægt að fá sem rafbækur.
  • Best Trips bækurnar frá Lonley Planet. Lýsingar á áhugaverðum leiðum til að keyra í gegnum löndin.
  • Bikeline -Hjólabækur um vinsælar hjólaleiðir, t.d.Dóná, Rín, Mosel og hjólaleiðir í hverju landi.
  • Promobile -þýskt tímarit um allt á milli himins og jarðar varðandi húsbíla, ferðavagna, húsbílastæði o.fl.
  • Reisemobile – þýskt tímarit um húsbíla og ferðavagna.

Öpp

Til eru ýmis öpp og vefsíður sem gagnast við undibúning ferðarinnar. Þau öpp sem ég hef hlaðið niður tengjast flest tjaldstæðum og það sem kallast “stellplatz” á þýsku, en það eru bílastæði sem eru ætluð húsbílum og eru með lágmarksþjónustu.

  • Park4night er app með fullt af bílastæðum, tjaldstæðum og fleiri stöðum þar sem hægt er að gista til einnar nætur í húsbílum eða lengur. Þetta app er algjört möst en það þarf að borga árgjald, sem er alveg þess virði. Þarna er hægt að lesa umsagnir ferðalanga um bílastæðin og tjaldstæðin og yfirleitt eru upplýsingar um verð.
  • Fleiri öpp eru t.d.Camperstop, Stellplatz-radar, Camping-App.eu, Camperstop, ACSI, stopwithfriends, ECCCampingführer.

Landakort

Þrátt fyrir að flestir noti rafræn landakort eins og Google Map eða Google Earth þá finnst mér nauðsynlegt að hafa líka gamla góða pappírslandakortið. Ég pantaði mér stórt landakort á Amazon og setti uppá vegg hjá mér til að safna saman áhugverðum stöðum sem mig langar að heimsækja í ferðinni.

Á Amazon er hægt að kaupa alls konar Evrópukort og kortabækur sem gott er að hafa í bílnum, því að ekki er hægt að treysta því að vera nettengdur allstaðar á ferðalaginu.

Instagram húsbílaferðarinnar

Hægt er að fylgjast með ferðalaginu á Instagram

@husbill_vanlife

One thought on “Undirbúningur

Leave a Reply

Discover more from husbill.com

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading