Fyrstu næturnar í húsbílnum

Þá er ég búin að prófa að sofa nokkrar nætur í bílnum og það gekk bara vel. Ég geymdi bílinn á langtímastæði við flugvöllinn í Munchen og keyrði þaðan til Rauris í Austurríki. Fyrstu dagarnir fóru í að græja bílinn og síðan var keyrti til Maria Alm, sem er lítill skíðabær stutt frá Rauris. Það var skrítið að vera ein að ferðast á húsbíl, en það hef ég aldrei gert áður, alltaf verið með einhvern úr fjölskyldunni með mér en eins gott að æfa það, því framundan er heilt ár með þessum ferðafélaga… þ.e.með sjálfum mér 🙂

Maria Alm

Stellplatz (bílastæði fyrir húsbíla) við bóndabæ í Maria Alm. Um nóttina snjóaði en miðstöðin virkaði vel og það fór því vel um mig í bílnum. Ég keyrði svo aftur til Rauris og sótti nokkra hluti sem vantaði, en það gleymist alltaf eitthvað í fyrstu ferðunum og því gott að geta skutlast heim til Rauris og reddað því sem þarf. Ég skellti mér líka á skíði í Rauris, en skíðasvæðið lokar eftir páska.

Austurhluti Austurríkis

Næstu nætur í bílnum voru á leiðinni til Slóvakíu, að sækja Sigurstein. Ég keyrði frá Rauris í austur átt og eyddi þremur dögum á ferðalagi í austurhluta Austurríkis, sem nefnast Steiermark og Niederösterreich. Þar er margt fallegt að sjá og gaman að keyra eftir hlykkjóttum sveitarvegum í gegnum litlu þorpin. Á þessari leið er m.a.bærinn Hallstadt, sem er mest myndaði staður í Austurríki. Þar er mikill fjöldi ferðamanna og þar sem ég hef komið þangað áður þá fór ég aðra leið, sem kom verulega á óvart og er ekki síður falleg leið. Það var meðfram vatninu Traunsee frá bænum Ebensee til Gmunden. Þaðan keyrði ég til Vín og svo til Bratislava í Slóvakíu.

Vínsmökkun og Dóná

Þegar ég hafði pikkað Sigursteinn upp af lestarstöð í Bratislava héldum við aftur til Austurríkis. Það tók að vísu smá tíma að finna strákinn þar sem hann komst ekki út úr lestinni á réttum stað og þurfti því að ganga langa vegalengd og þökk sé “share my location” þá fundum við hvort annað að lokum. Við keyrðum svo skemmtilega leið meðfram Dóná og næsta dag var áætlað að fara í vínsmökkunarferð í kastala í Gobelsburg.

Heimsókn í Schloss Gobelsburg var mikil upplifun þar sem Peter, gamli vínbóndinn, tók á móti okkur ásamt átta öðrum ferðamönnum frá Þýskalandi og Finnland. Hann fór með okkur um allan kastalann og vínkjallarann og eftir fjögurra tíma skoðunarferð þar sem sá gamli fór á kostum, sagði sögur og fræddi okkur um allt mögulegt, víngerð, sögu landsins, jarðfræði, pólitík og ættarsögu víngerðarmanna. Heimsóknin endaði svo á vínsmökkun og auðviðtað keyptum við svo nokkrar flöskur af kallinum.

Við héldum svo áfram og keyrðum meðfram Dóná en sú leið er þekkt hjólaleið og stefni ég á að hjóla þá leið einhvern tímann á árinu. Við vorum þrjár nætur á leiðinni til Munchen þar sem við sóttum Írisi á flugvöllinn og keyrðum til Snorra í Sviss.

Við eyddum páskunum hjá Snorra og Ade í St.Gallen í Sviss, fórum með þeim í fjallgöngur og skoðunarferð um borgina og héldum svo til Rauris. Þá fór Sigursteinn heim til sín til Slóvakíu, eftir ævintýralega ferð til Warsjá í millitíðinni og við Íris flugum svo heim frá Munchen.

Leave a Reply

Discover more from husbill.com

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading