Fyrsta vikan – Austurríki

Rauris

Nú er vika síðan ég lagði af stað í Evrópuferðina og með mér fyrstu dagana eru Hlíf og Dóri. Við flugum til Munchen, sóttum húsbílinn sem var á langtímabílastæði við flugvöllinn, og keyrðum til Rauris. Þar höfum við verið að mestu þessa síðustu daga og hjólað um allt í Rauris dalnum í blíðskapar veðri.

Myndband af hjólaferðum okkar í Rauris dalnum

Wolfgangsee

Við keyrðum líka á húsbílnum að Wolfgangsee þar sem við gistum í eina nótt á tjaldstæði í litlum bæ, Abersee, sem er við vatnið. Þaðan hjóluðum við til St.Gilgen sem er einnig við Wolfgangsee en meðfram vatninu er skemmtileg hjólaleið.

Að morgni 16.júní vöknuðum við við fallbyssuskot og lúðrahljómsveit klukkan sex um morguninn og komust fljótlega að því að það var hátíðardagur í Austuríki, sem tengist kaþólskri trú (Corpus Cristi). Dagurinn er haldinn hátíðlegur 60 dögum eftir páska og þá er allt lokað í Austurríki. Það var kannski skýringin á því hvers vegna svona margir voru á tjaldstæðinu og við þurftum að keyra á milli tjaldstæða til að ná í laust stæði.

Við keyrðum síðan til St.Gilgen og tókum kláf upp á Zwölferhorn (1522 m) og fórum í klukkutíma gönguferð um fjöllin. Þaðan var stórkostlegt útsýni yfir St.Gilgen og Wolfgangvatn.

Myndband frá Wolfgangsee og gönguferð á Zwölferhorn

Leave a Reply

Discover more from husbill.com

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading