Æfingaferð um páskana

Ég fékk húsbílinn afhentan í febrúar og fór á honum frá Munchen í Þýskalandi til Rauris í Austurríki í snjó og kulda. Ég gisti þó ekki í honum en prófaði hann í vetraraðstæðum og var mjög ánægð með hann.

Um páskana fer ég svo í fyrstu alvöru húsbílaferðina til að gista í honum. Þetta er eins konar æfingaferð fyrir stóru ferðina sem hefst í júní. Ég flýg til Munchen þar sem bíllinn er í geymslu og ætla að keyra um Þýskaland, Austurríki, Slóvakíu og Sviss. Þá ætla ég að græja bílinn að innan, kaupa ýmsa nauðsynlega hluti og gista í honum nokkrar nætur.

Þessar myndir eru frá ferðinni í febrúar.

Leave a Reply

Discover more from husbill.com

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading