Ertu að ofhlaða húsbílinn?

Það er freistandi að taka allar græjur með sér í húsbílaferðina þegar ferðast er með bílinn til Evrópu. Nauðsynlegt er þó að gæta hófs og vera með á hreinu leyfilega heildarþyngd húsbílsins. Í Evrópu gætir þú átt von á sekt ef bíllinn er of þungur. Í þessari grein frá Pincamp er fjallað nánar um sektargreiðslur í nokkrum Evrópulöndum. Ég tók saman nokkra punkta úr greininni.

Misháar sektir eftir löndum

Misjafnt er eftir löndum hversu há sektin er við ofhleðslu bíla. Bílstjórar geta átt von á því að vera stöðvaðir á hraðbrautum við almennt vegaeftirlit þar sem bíllinn er vigtaður. Hér að neðan má sjá töflu frá Pincamp þar sem nefnd eru dæmi um sektir í nokkrum löngum. Vikmörk er það viðmið sem yfirvöld í landinum nota án sekta, þ.e. ef vikmörk eru 5% þá er ekki sektað fyrr en yfirþyngd er meiri en 5% af leyfilegri heildarþyngd. Í sumum löndum eru þó engin vikmörk og sektað er fyrir hvert umfram kíló.

LandSektVikmörk
Þýskaland10-235 evrur, frá 20% ofhleðslu5%
Belgía110-330 evrur, erlendir þurfa að borga með peningum á staðnum2%
Danmörk10 evrur á hvert prósentustig af ofhleðslu1%
FrakklandAllt að 750 evrur, ökutæki stöðvað ef ofþyngd yfir 5%Engin
Ítalía41-1700 evrur5%
KróatíaFrá 40 evrumEngin
Lúxembourg74 evrur fyrir allt a 10% ofhleðslu, eftir það 251-5000 evrurEngin
Holland130-850 evrur 10%
Austurríki36-500 evrurEngin
Portúgal60-300 evrurEngin
Sviss85 evrur ef ofhleðsla er undir 100 kg, 170 evrur yfir 100 kg, ef meira en 5% er hætta á frekari sektumEngin
Spánn300-400 evrur fyrir 6-15% ofhleðslu, hámarkssekt 4600 evrur5%

Hvað er leyfileg hámarksþyngd?

Almennt: Leyfileg þyngd á farmi (farangri) er mismunurinn á leyfilegri hámarksþyngd og eigin þyngd ökutækis. Með farmi er átt við allan farangur sem er í bílnum með farþegum (nema ökumanni). Til dæmis, ef ökutækið er 2800 kg að eigin þyngd með leyfilega hámarksþyngd 3.5 tonn þá er farmþyngd 700 kg. Fyrir fjögurra manna fjölskyldu með útilegubúnað er þyngdin því fljót að ná hámarki.

Áður en þú kaupir grunnbúnað í húsbílinn ættir þú því að ganga úr skugga um að búnaður húsbílsins sé eins léttur og mögulegt er og að húsgögn o.fl. séu létt.

Ertu stundum að taka óþarfa dót með í húsbílaferðina?

Hvernig er hægt að spara þyngd?

Ef þú vilt forðast ofhleðslu á húsbílnum þínum ættir þú að spara þyngd í grunnbúnaði, s.s.fortjaldi, tjaldborði, stólum, grilli og öðrum viðbótar búnaði. Hjól og hjólagrind þarf að taka með í reikninginn svo og allan mat, fatnað og eldhúsbúnað. Gott er að hafa leirtau úr plasti og ekki vera með mikið af þungum mat, s.s.dósamat og vökva. Við hvern aukahlut eykst eiginþyngd bílsins. Ef vatnstankurinn er stór er ráð að fylla hann ekki, heldur bæta reglulega á hann á tjaldstæðum.

Þeir sem smíða húsbílinn sinn sjálfir þurfa að sjálfsögðu að hafa þyngdina í huga þegar verið er að innrétta sendibíl sem húsbíl. Það munar um hvert kíló og oft hægt að fá léttara efni til innréttingar. Gott er að hafa í huga að ef þú notar hlutinn sjaldan þá er betra að sleppa honum.

Leave a Reply

Discover more from husbill.com

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading