Breyttar aðstæður
Síðan upphafleg ferðaáætlun var gerð vorið 2017 hefur margt breyst í lífi mínu þannig að ég hef þurft að fresta fyrirhugaðri ársferð á húsbíl um Evrópu. Maðurinn minn lést, unglingurinn, sem ætlaði með, fór í framhaldsskóla og hundurinn okkar dó, en hann átti að vera varðhundurinn í ferðinni. Þá var húsbíllinn farinn að eldast og orðinn allt of stór fyrir mig eina og ég seldi hann því. Og svo kom covid…
En draumurinn um ársferðalag í Evrópu hvarf ekki og síðustu ár hef ég verið að undirbúa mig og bíða eftir rétta tækifærinu til að leggja af stað í ferðina. Sá tími er kominn… og sumarið 2022 legg ég af stað í ársferðalag um Evrópu.
Nýr húsbíll
Ég skoðaði ýmsa möguleika varðandi húsbíl, að leigja eða kaupa bíl, að flytja inn húsbíl eða að kaupa hann á Íslandi. Ég var með ákveðna stærð af húsbíl í huga, sendibíl sem er innréttaður í verksmiðjunni sem húsbíll. Á Íslandi eru ekki margir þannig húsbílar í boði og enginn af þeirri gerð sem ég hafði augastað á. Ég vildi bíl sem er lítill og nettur, ekki stóru hvítu kassa húsbílana, en samt með öllum húsbíla innréttingum s.s. eldhúsi og salerni. Um tíma hugleiddi ég að kaupa sendibíl og innrétta hann sem húsbíl, en hætti fljótlega við það þar sem ég hafði hvorki aðstöðu né tíma til þess.
Niðurstaðan varð að lokum sú að kaupa húsbíl í Sviss, þar sem sonur minn er búsettur og geyma bílinn þar. Nýverið festi ég svo kaup á “Van”-húsbíl, eða það sem þjóðverjar kalla “Kastenwagen”. Bíllinn er af gerðinni Knaus Boxstar árgerð 2021. Nánari upplýsingar um bílinn.









