Fjölskylduhittingur í Danmörku

Í maí keyrði ég til Danmerkur að hitta ættingja og vini. Fyrst systur mína og fjölskyldu sem býr rétt hjá Sönderborg og svo vini í Kaupmannahöfn. Danmörk er eins og allir vita eitt flatasta land í Evrópu og því var tilvalið að taka hjólin með og hjóla um sveitir landsins.

Ég hjólaði m.a.um Norreskov sem er á eyjunni Als rétt hjá Sönderborg. Þar eru frábærir hjólastígar, bæði í skóginum og á milli bæja á eyjunni Als. Hægt er að keyra yfir á eyjuna Als á brú við Sönderborg.

Frá Sönderborg var keyrt til Sjálands og til Kóngsins Köben. Við hjóluðum um Kaupmannahöfn og keyrðum svo þaðan suður Sjáland þar sem við fórum í gönguferð um stórkostlega strönd, Mons Klint.

Frá Danmörku var haldið suður á bóginn, í Alpana, að undirbúa næstu ferð sem var hjólaferð frá Garmisch-Partenkirchen í Þýskalandi til Gardavatns á Ítalíu. Meira um það í næsta bloggi.

Leave a Reply

Discover more from husbill.com

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading