Finnland

Frá Álandseyjum tók ég ferjuna frá Mariehamn til Turku í Finnlandi. Þangað er rúmlega fjögurra tíma sigling og svo er tímamismunur einn klukkutími. Ég var ekki komin til Turku fyrr en um kvöld og þá lagði ég bílnum á bílastæði við höfnina og gisti þar. Stundum gisti ég á bílastæðum, sérstaklega þegar ég kem seint á náttstað og þarf ekki á þjónustu tjaldstæðis að halda. Ég er með app sem heitir Park4night og þar er hægt að finna stæði, bæði bílastæði og tjaldstæði, þar sem fólk gefur umsögn um stæðið. Þetta app hefur hjálpað mér mikið þegar ég er að leita að náttstað. Tjaldstæði eru misdýr, allt frá 20 til 50 evrum nóttin fyrir húsbíl og einn farþega. Að gista á bílastæðum er oft ókeypis en stundum þarf að borga sólarhringsgjald, sérstaklega þegar gist er í borgum.

Frá Turku keyrði ég til Tampere og gisti þar á tjaldstæði rétt við bæinn. Á leiðinni stoppaði ég í fallegum þjóðgarði, Kurjenrahka, og fór í langan göngutúr um þjóðgarðinn, mjög fallegt þar. Í Tampere fór ég á Muminsafnið og keyrði svo á átt að Helsinki. Á leiðinni stoppaði ég í iittala verksmiðjunni í ittalla bænum og það var mjög gaman að sjá vinnuna þar.

Að keyra um Finnland og hlusta á finnska útvarpið er mjög fyndið. Þetta tungumál fær mann til að brosa allan daginn og að lesa á skiltin á leiðinni er ekki síður skemmtilegt. Það eru t.d.borgir sem heita Nokia, Iittala, Urjala, Lempäälä, Akaa, Hattula, Janakkala, Hämeelinna, Pöytä og Sastamala. Alveg dásamlegt þetta tungumál 🙂

Síðasta borgin sem ég ég heimsótti var höfuðborgin Helsinki. Þar hjólaði ég um borgina og tók svo ferjuna þaðan til Tallin í Eistlandi.

Helsinki
Helsinki

Leave a Reply

Discover more from husbill.com

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading