Svíþjóð og Álandseyjar

Computer says no

Frá Noregi hélt ég til Svíþjóðar og fyrsta stopp var auðvitað Ikea 🙂 Ég þurfti nefninlega að komast í netsamband því ég var nýlega búin að fá sms skilaboð um að rafrænu skilríkin væru að renna út og að ég þyrfti að koma á skráningarstöð til að endurnýja þau. Og það var frekar erfitt því að ég er ekki á landinu. Það hlaut því að vera önnur leið og ég hringdi í Auðkenni til að endurnýja rafrænu skilríkin. Sá sem svaraði mér þar sagði að ég yrði bara að koma á staðinn til að endurnýja, það væri enginn önnur leið. Sama hvað ég reyndi að fá lausn hjá unga manninum þá var bara “computer says no” og að ég yrði bara að panta mér flugfar til Íslands til að skrifa undir nýjan samning. Ekki hægt að gera það rafrænt… með rafrænum skilríkjum, því að þau voru jú ekki runnin út ennþá. 

Ég neitaði að trúa þessu og las allar upplýsingar á vefsíðunni þeirra og komst þá að því að auðvitað er önnur leið, fyrir þá sem ekki komast á staðinn. Það var að hlaða niður appinu þeirra og þannig að undirrita nýjan samning um rafræn skilríki. Þegar ég reyndi það þá komst ég ekkert áfram eftir að hafa hlaðið niður appinu og ég hringdi því aftur í Auðkenni og fékk sem betur fer annan starfsmann, en stúlkan sagði líka að ég yrði að koma og ég benti henni þá á appið. Hún gaf mér þá samband við tæknimann sem gæti aðstoðað mig með appið… og það var maður sem bjargaði deginum fyrir mér 🙂 Niðurstaðan var sú að ég þurfti að uppfæra símann, hlaða niður appinu og endurræsa símann. …og það virkaði 🙂 Hvernig væri ef starfsmenn myndu nú kynna sér þær upplýsingar fyrirtækisins sem eru á heimasíðunni?

Anyway….ég hélt ferðalaginu áfram, eftir að hafa pirrað mig á framkomu þessara starfsmanna.

Tré, skógur og meiri skógur og einstaka akur

Ég keyrði austur Svíþjóð, framhjá Örebro, Stokkhólmi og að ferjustaðnum Kapellskär. Gisti þar og tók svo ferju yfir til Mariahamn á Álandseyjum. Álandseyjar en undir finnskri stjórn, en samt eru þeir t.d. með sér fána og lén. En þeir tala sænsku og gjaldmiðillinn er Evra. Allt er samt frekar sænskt þarna, húsin og landslagið, meiri skógur og fleiri tré. Mjög fallegt þarna og ég keyrði um nokkrar eyjar, sem voru tengdar með brú. Ég skoðaði líka eina kastalann á eyjunum, Kastenholm, kirkju í Sund, minjasafn og fór í gönguferð um skóginn. Svo gisti ég á bílastæði langt inn í skógi við fallega strönd. Mjög friðsælt og fallegt.

Ferðast með ferjum

Mér fannst nóg að vera eina nótt á Álandseyjum og tók því ferjuna daginn eftir til Finnlands. Ég er búin að uppgötva þann lúxus að taka ferjur, þá get ég bara setið á kaffiteríunni á meðan skipstjórinn kemur mér á næsta áfangastað. Ég þarf ekki að sitja við stýrið, en það getur verið þreytandi að keyra klukkutímum saman, dag eftir dag. Aldrei að vita nema að ég notfæri mér meira ferjurnar í ferðalaginu.

Næstu daga verð ég í Finnland áður en ég sigli yfir til Eistlands

Leave a Reply

Discover more from husbill.com

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading