Siðustu daga hefur Íris Arna dóttir mín, ferðast með mér í húsbílnum en hún er að fara í nám í Noregi. Ég keyrði til Gdansk í Póllandi þangað sem hún flaug frá Íslandi. Ég fann þetta fína langtímabílastæði við flugvöllinn og ákvað að leggja húsbílnum þar daginn áður, en hún átti að lenda um nóttina. Flugið gekk vel og hún var komin um þrjúleytið um nóttina. Við fengum okkur þá smá lúr áður en haldið var af stað daginn eftir.

En þegar ég ætlaði að fara út af bílastæðinu þá virkaði hvorki að nota visakort né símann til að borga fyrir bílastæðið og ég var ekki með neina pólska peninga. Og svona snemma að morgni var enginn starfsmaður á svæðinu. Ég prófaði alla “parking pay” kassa á flugvellinum en ekkert gekk. Og eftir að hafa talað við “hjálp” takka konuna í sjálfsafgreiðslukassanum og sýnt henni bílastæðamiðann minn þá sagði hún að ég væri á langtímastæði og það væri minna en sólarhringur síðan ég kom inná stæðið… ég sá því fram á þurfa að vera þarna á flugvallarbílastæðinu til langs tíma 🙂 …en eftir samningaviðræður þá var mér loks hleypt útaf flugvellinum en ég lærði það að framvegis væri ekki sniðugt að leggja á langtímastæði á flugvöllum nema að vera að minnsta kosti sólarhring á stæðinu.





Frá Póllandi keyrðum við til Þýskalands, meðfram norðurströnd landsins og gistum tvær nætur á leið okkar til Danmerkur. Þar heimsóttum við systur mína og hennar fjölskyldu og dvöldum hjá þeim í tvær nætur.








Þá var förinni heitið til Molde í Noregi þar sem stórfjölskyldan ætlar að hittast og dvelja saman í nokkra daga. Leiðin þangað frá Sönderborg í Danmörku er ansi löng og tók það okkur tvo daga að keyra þangað. Við gistum eina nótt á leiðinni í huttu nálægt Osló.












Næstu daga verð ég í Noregi og heimsæki svo hin norðurlöndin.