Hitabylgja í Ölpunum

Síðustu daga hefur verið mjög heitt hérna í Austurríki 🥵 oft yfir 30 gráður á daginn og sumir dagar endað með úrhellis rigningu þegar líður á kvöldið. Ég hef verið í Rauris að vinna ýmis vorverkefni í garðinum ásamt því að fara í hjóla-og gönguferðir með Boggu nágrannakonu minni sem hefur verið hjá mér síðustu vikuna. Við erum búnar að hjóla um allan dalinn og til Zell am See, fórum í fjallgöngu, gengum Kitzlochklamm gilið og keyrðum inn Gasteiner dalinn.

Garðverkin í litla húsinu mínu í Rauris hafa gengið vel en í þessu veðurfari, steikjandi hita á daginn og úrhelli á kvöldin, þá vex gróðurinn eiginlega einum of mikið. Ég keypti nýja sláttuvél og djöflast nú á henni daginn út og daginn inn til að reyna að hafa í við grasvöxtinn. Og trjárunnarnir eru orðnir svo stórir að ég næ ekki lengur með keðjusöginni upp á topp til að klippa þá, þrátt fyrir að standa í efstu tröppu. Ég þarf greinilega að fá mér hærri tröppu 🤪

Ég keypti nokkur sumarblóm til að setja á svalirnar og í garðinn, en það er svo gaman að kaupa blóm hérna því að það er svo mikið úrval af fallegum blómum og svo eru þau svo ódýr. Þessi 35 blóm sem ég keypti kostuðu ekki nema 70 evrur (um 10 þús.ísl.)

Næstu daga ætla ég að ferðast um Austurríki í húsbílnum, fara í fjallgöngur, hjóla og njóta fegurðar fjallanna.

Á morgun… eða öllu heldur í nótt… þá legg ég af stað í fyrstu ferðina en það er 10 tíma pílagrímaferð… 🥾 …meira um það í næsta bloggi 🤗

Leave a Reply

Discover more from husbill.com

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading