Síðustu daga hef ég dvalið í Sviss hjá syni mínum, Snorra og tengdadóttur, Ade. Þau eru búsett í St.Gallen sem er austarlega í Sviss og ég keyrði þangað í síðustu viku. Um helgina heimsóttum við foreldra Ade sem búa við Biel vatnið í litlum bæ sem heitir Le Landeron og er í franska hluta Sviss.

Á föstudeginum fór ég með húsbílinn á verkstæði í St.Gallen, að láta gera við skemmd í framrúðu sem kom fyrr í vetur. Þetta var lítið gat sem hægt var að gera við og þeir á verkstæðinu voru snöggir að því.

Um helgina fórum við í fjallgöngu upp á Creux du Van, klettar sem eru á Val de Travis svæðinu í Júrafjöllunum. Ég dvaldi svo í góðu yfirlæti hjá fjölskyldu Ade og fórum við m.a.á matsölustað í í fjallaskála í Júrafjöllunum þar sem við gæddum okkur á Svissnesku fondu, en það er einn af þjóðarréttum Svisslendinga.











Á sunnudeginum keyrðum við aftur til St.Gallen og ég hélt svo af stað til Austurríkis í dag. Þar ætla ég að ferðast um þessa vikuna, keyra fjallvegi og fara í fjallgöngur. Hitastigið hér hefur verið í kringum 30 gráður síðustu daga og spáð hækkandi næstu tvo daga. Þá er best að drífa sig til fjalla í Ölpunum.