Hvernig væri að láta drauminn rætast og ferðast á húsbíl um Evrópu í sumar?
Þann 4.mars hefst nýtt námskeið um húsbílaferðalög í Evrópu. Námskeiðið er eina námskeiðið á þessu ári og því tilvalið fyrir þá sem huga að húsbílaferð í sumar. Hægt er að skrá sig á skráningarsíðunni.
Á námskeiðinu er farið í helstu atriði sem þarf að hafa í huga áður en lagt er af stað í húsbílaferð til Evrópu. Hvaða möguleikar eru varðandi kaup eða leigu á húsbíl og hvernig húsbíl. Hvert á að fara og hvað er hægt að skoða? Hvenær er besti tíminn og hvað viltu vera lengi? Hvernig eru tjaldstæðin og hvar má gista? Vinsælar ferðamannaleiðir. Hvaða reglur gilda um akstur í Evrópulöndum? Hvað kostar svona ferð?
Námskeiðið er á netinu, einu sinni í viku í fjórar vikur. Á mánudögum eru fyrirlestrar sem hægt er að horfa á allan tímann meðan á námskeiði stendur og á fimmtudagskvöldum eru umræðufundir á netinu (Zoom). Þátttakendur fá vikuleg verkefni til að auðvelda þeim að skipuleggja sína eigin húsbílaferð um Evrópu.
Nánari upplýsingar um námskeiðið má finna husbill.com/namskeid























