Nú þegar birta fer að degi þá eru margir eflaust farnir að huga að húsbílaferð næsta sumar. Á netinu má finna ýmsar vefsíður yfir tjaldstæði í Evrópu. Hér eru nokkur dæmi um tjaldstæða-vefsíður.
Pincamp
Vefsíða þýsku ADAC-bíleigenda samtakanna með yfir 14.500 tjaldstæðum í 42 löndum. Hægt er að leita eftir löndum eða velja staði á korti. Samtökin gefa einnig út tímarit um ferðalög í Evrópu, hægt er að skoða dæmi um áhugaverðar ferðaleiðir í Evrópu og upplýsingar um ýmsa ferðamannastaði.
Camping.info
Stærsti camping-vefur Evrópu með yfir 23.000 tjaldstæðum í 44 löndum. Á vefnum er umfjöllun um leiðir og áfangastaði og ýmsar ráðleggingar um gistingu á tjaldstæðum.
Park4night
Eitt vinsælasta app og vefsíða húsbílaferðalanga um Evrópu. Þar er að finna upplýsingar um tjaldstæði, húsbílastæði og bílastæði þar sem hægt er að leggja húsbílum yfir nótt. Greiða þarf fyrir fullan aðgang að appinu.
Eurocampings.eu
Vefsíða og app ASCI camping-klúbbsins, sem er einn stærsti tjaldstæða klúbbur Evrópu. Á vefnum eru um 9300 tjaldstæði í 33 löndum. Vefurinn eru mest sótti tjaldstæða vefur Evrópu. Hægt er að sækja um camping-kort á vefnum. Á vefnum er hægt að leita eftir ákveðnum tegundum af tjaldstæðum eða eftir landsvæðum.
