Nokkur góð ráð fyrir vetrarferðir á húsbíl

Til að hægt sé að njóta ferðalagsins í frosti og snjó þá er nauðsynlegt að undirbúa sig vel. Þýska síðan Promobil hefur tekið saman nokkur góð ráð fyrir húsbílaeigendur sem eru á húsbílaferðalagi að vetri til. Í þessari grein er lausleg þýðing frá Promobil um vetrarferðir á húsbílum í Evrópu ásamt minni reynslu af húsbílaferðum í Evrópu að vetrarlagi.

Vetrarfrí annað er sumarfrí

Eitt er víst, að vetrarfrí á húsbíl er öðruvísi en sumarfrí á húsbíl. Snjór og kuldi krefjast aðeins meiri undirbúnings. Ólíkt á sumrin þá þarf að finna húsbílastæði eða tjaldstæði fyrirfram. Þau eru ekki öll opin á veturna og staðir fyllast fljótt, sérstaklega á almennum frídögum.

Gátlisti fyrir vetrartjaldsvæði frá Promobil

  • Pantaðu tjaldstæðið snemma.
  • Settu vetrardekk undir bílinn.
  • Fáðu þér snjókeðjur og æfðu þig í að setja þær á.
  • Fáðu þér einangrunarmottur (fyrir glugga að utan og innan).
  • Hafðu meðferðis gasmælir og yfirfarðu gaskerfið
  • Taktu með vetrarskyggni/fortjald og verkfæri (hamar, tangir osfrv.).
  • Taktu með gluggasköfu, kúst með löngu skafti og skóflu.
  • Fata fyrir grátt vatn (affallsvatn).
  • Hladdu ræsi- og rafgeyma fyrir brottför.

Áður en ekið er af stað

Áður en lagt er af stað þarf að fylla á rúðuvökva með viðeigandi frostvörn, helst niður í mínus 30 gráður. Birgðir fyrir ferðina ættu líka að vera í farangrinum þínum. Góð rúðuþurrkublöð eru líka nauðsynleg fyrir gott útsýni og gott ráð er að skipta um þau fyrir veturinn.

Ef þú hleður bíl- og ræsirafgeyma að fullu áður en lagt er af stað geturðu komið í veg fyrir ræsingarvandamál vélarinnar eða rafmagnsleysi í húsbílnum. Sama gildir um gasbirgðir sem alltaf á að fylla að hámarki í vetrarferð – nema að bíllinn sé með dísilmiðstöð.

Þegar komið er á vetrartjaldstæðið

Þegar komið er á tjaldstæðið er skynsamlegt að hreinsa stæðið sem þú færð úthlutað af lausum snjó og tryggja að svæðið sé traust og slétt. Snjóskófla er gagnleg fyrir þetta. Þá er auðveldara að leggja bílnum og svæðið undir húsbílnum verður sléttara.

Loftræsting og hiti í húsbílnum

Húsbíllinn ætti að vera notalegur og hlýr á veturna. Þá er rétt upphitun og loftræsting grundvallaratriði til að koma í veg fyrir rakamyndun. Þess vegna ætti að opna alla glugga og hurðir í fimm mínútur að minnsta kosti tvisvar á dag til að hleypa köldu lofti inn. Því kaldara og þurrara sem loftið er, því meiri raka getur það tekið í sig þegar það hitnar.

Lofttúða veitir einnig ferskt loft. Öndunargati (rist) þeirra má ekki loka þar sem það kemur í veg fyrir kolmónoxíðeitrun. Ef þú ert viðkvæmur fyrir dragsúg, ættir þú að gæta þess þegar þú velur húsbílinn þinn að lofttúða sé ekki nálægt rúminu eða setusvæðinu.

Ef gasloginn fyrir miðstöðina slokknar, reyndu fyrst að kveikja á honum aftur, þar sem slokknað getur á loganum í vindi. Lítið gas getur auðvitað líka verið orsökin. Hitarinn þarf ekki aðeins gas, heldur einnig loft, til að bruninn virki verða inntaks- og útblástursop alltaf að vera laus við snjó og ís.

Einn möguleiki er að nota fortjald sem virkar sem loftslags- og rakalás. Á sama tíma getur það nýst sem auka kælir, geymslupláss fyrir íþróttabúnað (t.d.skíðabúnað), svæði til að hreinsa óhreinindi og vörn gegn snjófoki við innganginn. Vetrarfortjöld eru yfirleitt með sterkari stöngum og hallandi þaki þannig að snjórinn rennur auðveldara af. Hamar og tangir hjálpa til við að reka pinnana í ískalda jörðina og draga þá út aftur. Með viðbótarhitun verður fortjaldið líka notaleg framlenging á íbúðarrýminu. Umfjöllun Promobil um mismundandi aukahitara.

Ráð Promobil varðandi hitun og loftræstingu í húsbíl

  • Rafmagns teppahitamottur hjálpa gegn köldum fótum þegar tjaldað er á veturna. Snjóveggur neðst kringum húsbílinn kemur í veg fyrir dragsúg undir ökutækinu sem kælir bílinn.
  • Til auka upphitunar á ökumannshúsi er hægt að bæta við dísel aukahitara.
  • Ef þurrkherbergi er á tjaldstæðinu er best að geyma blautan skíðabúnað, stígvél og rakan fatnað þar og þurrka, þannig að sem minnstur raki komist inn í húsbílinn.

Rafmagn, gas og vatn á veturna

Framboð á gasi og rafmagni gegnir mikilvægu hlutverki. Möguleikar til að tengjast rafmagni eða fylla á gaskúta skiptir sköpum. Að skipuleggja ferðaleiðina fyrirfram gerir vetrarferðalag á húsbíll auðveldara.

Gas á veturna

Gasnotkun er auðvitað mikil á veturna þegar hitun er í gangi. Reynslan sýnir að ellefu kílóa flaska endist ekki nema tvo til þrjá daga að meðaltali. Þess vegna bjóða helstu vetrartjaldstæðin nú ekki bara upp á rafmagn og ferskvatn heldur einnig fastar gastengingar í aðveituboxinu á svæðunum. Þeir eru fóðraðir í gegnum eigin gasleiðslukerfi svæðisins. Með því að tengjast gasleiðslukerfinu kemstu hjá því að vakna á nóttunni í köldum húsbíl og þurfa að fara út til að skipta um gaskút.

Allir sem ferðast til útlanda og kaupa eða leigja gaskúta lenda oft í öðrum tengingum en almennt er notað í Þýskalandi. Hægt er að kaupa svokölluð Euro millistykki sem eru notuð á gaskútana í mismunandi löndum til áfyllingar – skynsamleg fjárfesting. Nánari upplýsingar um gasbirgðir erlendis má finna hér. Til þess að halda utan um gasmagnið í kútunum eru sérhannaðir gasmælar til dæmis frá Dometic og Truma.

Rafmagn á veturna

Þegar kemur að rafmagni ættu eigendur sólarrafhlaða að búast við því að þær verði ekki eins afkastamiklar á veturna og á sumrin, snjór og minna sólarljós draga úr raforkuframleiðslu.  Köld rafhlaða gefur minna afl en hlý. Aflgjafinn hefur tilhneigingu til að klárast á veturna, ekki aðeins vegna meiri notkunar, svo þú ættir að tengja rafmagnið eins oft og mögulegt er.

Þess vegna er landrafmagnstenging nánast nauðsynleg þegar gist er á veturna, mun meira rafmagn er venjulega notað en á sumrin. Þetta er ekki bara vegna þess að ljósið logar lengur heldur líka vegna þess að hitarinn þarf rafmagn auk eldsneytis fyrir stýringuna og umfram allt hitablásarinn. Þegar rafmagnssnúran er lögð að landrafmagnstenginu skal gæta þess að kapallinn sé alveg rúllaður af tromlunni. Annars er hætta á ofhitnun sem getur valdið íkveikju. Best er að leggja kapalinn í stærri lykkjur undir ökutækinu – undir engum kringumstæðum á stígnum þar sem hann gæti skemmst við snjóhreinsun.

Vatn á veturna

Þegar vatn er sett á húsbílinn á veturna, ætti hitun í húsbílnum að vera í gangi að minnsta kosti hálftíma áður til að forhita innréttinguna. Að öðrum kosti, við hitastig undir fjórum gráðum plús, opnast frostvaktar-ventillinn og kalda vatnið rennur út af vatnstaknum.

Þegar kemur að frárennslisvatni á þó eftirfarandi við: Ef tankurinn er ekki einangraður og upphitaður getur vatnið frosið fyrr eða síðar. Þá er betra að skilja frárennslislokann eftir opinn og safna gráa vatninu (affalssvatninu) í fötu og farga því. Ef þú ferðast mikið í kulda geturðu einangrað tankinn. Hér útskýrir Promobil hvernig það er gert.

Ef þú vilt koma í veg fyrir að vatnið frjósi í ísblokkir skaltu bæta við frostlegi. Einnig er hægt að hella frostlegi sem hentar fyrir vatnskerfið beint í vaskinn til að verja lagnir á gólfi bílsins gegn frosti. Í sumum húsbílum er upphitað gólf og því ekki vandamál, þar sem lagnir og frárennslistankur eru sett upp til að verja þau fyrir frosti.

Tjaldstæðið í Mayrhofen í Austurríki

Mitt ráð varðandi vatn á veturna

Mitt persónulega ráð varðandi vatn í húsbíl á veturna er að hafa lausan vatnstank/brúsa inn í bílnum og nota ekki stóra innbyggða vatnstankinn á veturna. Þá þarf ekki að hafa áhyggjur af því að vatn frjósi í leiðslum. Svo var ég með bala í vaskinum fyrir affallsvatn og tæmdi hann eftir notkun. Á flestum tjaldstæðum sem eru opin á veturna er góð aðstaða til að vaska upp og því óþarfi að nota vaskinn í bílnum.

Vetrardekk og snjókeðjur fyrir húsbíla

Eins og aðrir bílar þá þarf húsbíllinn að vera á vetrardekkjum í vetrarferðum. Nagladekk eru bönnuð í flestum Evrópulöndum en notkun snjókeðja er leyfð á ákveðnum fjallvegum. Það er því gott að hafa snjókeðjur í húsbílnum sem geta komið að góðum notum t.d. í snjó og hálku inn á tjaldstæðum. Einnig er gott að hafa meðferðis mottur eða kubba sem hægt er að setja undir dekkin til að auka gripið, t.d.til að komast af tjaldstæði.

Í Alpalöndum er sumstaðar skylda að vera með vetrardekk undir bílnum. Samkvæmt upplýsingum frá Promobil þá er í Þýskalandi og Austurríki krafa um aðstæðubundna vetrardekkjanotkun, þ.e.a.s. vetrardekk eru nauðsynleg fyrir vetraraðstæður eins og í hálku, snjó eða frosti. Í Frakklandi gildir hins vegar krafa um að setja á vetrardekk í afmörkuðum fjallahéruðum frá 1. nóvember til 31. mars. Á Ítalía eru svipaðar reglur t.d. fyrir fjallahluta Suður-Týróls (15. nóvember – 15. apríl). Á öðrum svæðum eins og Toskana getur stundum verið krafa um vetrardekk þegar þörf krefur og er það þá merkt með skiltum. Sviss gerir hins vegar engar almennar kröfur heldur leggur ábyrgðina í hendur ökumanns sem ber ábyrgð á óhöppum án viðeigandi dekkja.

Alltaf er þó ráðlegt að kynna sér reglur um dekkjanotkun í hverju landi fyrir sig áður en lagt er í vetrarakstur.

Einangrunarmottur og fleiri fylgihlutir

Margir húsbílar eru með stórt gler- og málmplötusvæði í ökumannshúsi sem leiðir kulda inn í bílinn. Til að vinna gegn þessu getur einangrunarmotta verið gagnleg. Hún er dregin yfir alla framhliðina og kemur í veg fyrir ísingu í framrúðunni og hitatapi. Ef framrúðan frýs er ráðlagt að nota öfluga sköfu og frostlög.

Framrúðan frýs líka af og til innan frá. Í því tilviki ættir þú að opna fyrir gardínuna til að lofta betur um. Kveiktu síðan á vélinni og loftkælingunni og snúðu blásaranum í hæstu stillingu. Ef þú skefur ís að innan skaltu setja handklæði undir fyrst til að forðast polla.

Góð aðstaða á vetrartjaldstæðum

Vetrarfrí eru þægileg á tjaldsvæðum í Evrópu því þar eru oft mjög góðar aðstæðurnar fyrir húsbílafólk og hægt að njóta dvalarinnar í fallegu vetrarveðri. Víða er geymsla fyrir vetraríþróttabúnað eins og skíði, snjóbretti og skíðaskó. Í stað þess að þurrka búnaðinn í inn í húsbílnum eru tjaldstæði með sérstök þurrkherbergi.

Í mikilli snjókomu getur mikill snjór safnast fyrir á þaki bílsins. Það ætti að fjarlægja með því að nota stiga og kúst, að minnska kosti áður en ferðinni er haldið áfram. Önnur hætta er sú að hurðarlásinn frjósi. Því er ráðlegt að taka alltaf með sér lásasprey , þó það eigi ekki að geyma í farartækinu. 

Gott að hafa snjósköfu eða skóflu, kúst, stóra gluggasköfur og stiga í vetrarferðum

Promobil ráðleggingar um húsbílastæði og akstur á veturna

  • Samanbrjótalegur stigi nýtist vel til að fjarlægja snjó af þaki húsbílsins.
  • Mörg tjaldstæði eru lokuð á veturna og því minna framboð. Það getur því komið sér vel að panta pláss með fyrirvara þar sem opnu tjaldstæðin eru oft fullbókuð fram í tímann.
  • Þegar þú skipuleggur leið þína skaltu hafa í huga vetrarlokanir á fjallvegum og heiðum og hæðartakmörkunum í undirgöngum
  • Akið fjallvegi aðeins á góðum vetrardekkjum
  • Vertu viss um að þú hlaðir húsbílinn rétt því ójöfn þyngdardreifing getur haft óhagstæð áhrif á grip á hálum vegum og sérstaklega í brekkum
  • Fyrir ferðina skaltu kanna dráttarkróka, ræsingaraðstoð og snjókeðjur eða að minnsta kosti finna út nákvæmlega hvað þarf að gera og hvar. Í neyðartilvikum er oft mikið álag og hlutirnir virka ekki alltaf strax.
  • Þegar hálka og snjór er á veginum gildir eftirfarandi: Haldið meiri fjarlægð frá öðrum vegfarendum og akið að jafnaði hægar og gætilegra. Munið líka að hemlunarvegalengdin getur aukist gríðarlega við vetraraðstæður.

Samantekt

Vetrarferðalag á húsbíl í Evrópu er spennandi valkostur en mikilvægt er að undirbúa sig vel því að aðstæður er allt aðrar en á sumrin. Í þessari grein er fjallað um helstu atriði sem þarf að hafa í huga í vetrarferðum og fleiri upplýsingar má finna á vefsíðu Promobil um 10 ráð í vetrarferðum fyrir byrjendur.

Heimild: https://www.promobil.de/tipps/wohnmobil-tipps-tricks-wintercamping/

Ljósmyndir: Eygló R Sigurðardóttir

Leave a Reply

Discover more from husbill.com

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading