Á húsbíl í Marokkó

Magnea Björg Jónsdóttir er búin að vera á húsbílaferðalagi í Marokkó síðustu tvo mánuði og lætur vel að ferðalaginu þar. Hún segir mikið af húsbílafólki vera á ferðalagi í landinu, mest Frakkar, Þjóðverjar, Hollendingar og Bretar. Magnea var mestallan tímann ein á ferðalagi á húsbílnum sínum og fannst það ekkert mál. Hún segist aldrei hafa orðið fyrir áreiti og hafði engar áhyggjur af innbroti eða skemmdum á bílnum. Aftur á móti segir hún að það sé mikið af sölufólki og betlandi börnum, sem hafi stundum verið erfitt, en að það hafi þó vanist fljótlega.

Vegakerfið gott

Magneu finnst vegakerfið í Marokkó vera gott og að yfirleitt sé malbikað. Hún keyrði yfir það sem kallast Há Atlasfjöll upp í 2000 m hæð og þar var vegurinn góður, en stundum þó vegavinna sem hafi tafið för. Hraðbrautir eru á milli helstu þéttbýlisstaða og þar eru vegatollar, en þeir eru ekki háir. Hún segir að það sé ekki mikil umferð ferðamanna á þessum árstíma en í borgum geti verið stressandi að keyra því að heimamenn fari ekki allir eftir umferðarreglum.

Magnea segir mikið um eftirlit á vegum landsins og að heimamenn séu frekar stoppaðir en ferðamenn. Hún segist hafa verið stoppuðu nokkrum sinnum og þurfti þá að sýna alla pappíra bílsins og vegabréfið sitt. Hún mælir með að halda sig á löglegum hraða í landinu en að stundum sé erfitt að átta sig á hver sé hámarkshraðinn því að víða vanti skilti. Lögreglan mælir oft hámarkshraðann og þá þarf að greiða sektina á staðnum. Hennar reynsla er þó að laganna verðir séu mjög almennilegir.

Fallegt landslag

Magnea er hrifin af landinu, segir landslagið fallegt og fjölbreytilegt. Hún segir mikinn mun vera á norður hlutanum, þar sem er mikill gróður, og suður hlutanum þar sem er mjög þurrt og að stórum hluta eyðimörk. Þá tekur því ekki að þurka af inni hjá sér, segir Magnea, því sandurinn smýgur aftur og aftur inn. Uppáhaldsstaðir hennar voru Erg Chebby eyðimörkin og Tafraout. 

Ódýrt að ferðast í Marokkó

Marokkó er frekar ódýrt land þegar verslaðar eru innlendar matvörur, segir Magnea og að fara út að borða kostar um 5-10 evrur. En áfengið er ekki ódýrt og það getur verið erfitt að finna áfengisbúð í íslömsku ríki, segir Magnea. Þær eru ómerktar og það þarf að spyrjast fyrir um þær. Verðið á eldsneytie er ódýrar en á Íslandi en líterinn af díselolíu kostar um 1-1,25 evrur.

Tjaldstæðin í Marokkó

Magnea segir þó nokkuð um tjaldstæði í Marokkó en að þau séu mjög mismunandi. Oftast séu salernis- og sturtuaðstaða bágborin en virki þó og henni finnst lítill metnaður í að laga það sem aflaga fer. Verðið er á um 5-12 evrur, oftast ódýrara án rafmagns. Hún lagði líka stundum á bílastæðum og það gat kostað um 2-3 evrur.

Magnea segir að það hafi verið lærdómsríkt að ferðast um Marokkó og hún hitti marga sem fara á hverju ári á húsbílnum sínum til Marokkó. Hún segir mikla fátækt í landinu en líka ríkidæmi. Mismunandi menningahópar búi í landinu og mest beri á Berbum og finnst henni menning þeirra og handverk áhugavert.

Magnea mælir með ferðalagi um Marokkó og hvetur þá sem áhuga hafa á húsbílaferðalagi um Marokkó að kynna sér fyrirfram hvað er skoðunarvert og að gefa sér góðan tíma.

Leave a Reply

Discover more from husbill.com

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading