Húsbíllinn, sem ég ferðaðist á í eitt ár um Evrópu,er þýskur af gerðinni Knaus Boxstar Street, árgerð 2021. Í bílnum er allur nauðsynlegur búnaður, eldhús, salerni, sturta, miðstöð, rúm fyrir 2-3, markísa, hjólagrind og fleira. Tæknilegar upplýsingar má finna hér.
Eftir ársferðina á Knaus húsbílnum seldi ég hann og keypti sendibíl sem ég er núna að innrétta sem húsbíl. Sendibíllinn er Ford Transit, stuttur, háþekja (H2L2). Í bílnum ætla ég aðeins að hafa nauðsynlegan búnað og ekkert gas. Bíllinn verður með olíumiðstöð, sólarsellur, salerni, rúmi fyrir tvo og eldhúsinnréttingu. Nánari lýsing á húsbílasmíðinni má sjá á instagram síðunni husbill_vanlife

Í þessum bækling má finn upplýsingar um Knaus Box -húsbílana, Boxstar, Boxlife og Boxdrive.
Bílasölur í Evrópu
Sá bílasöluvefur sem ég hef mest notað er
Á þessum vef er hægt að leita eftir húsbílum og þrengja leitina við árgerð, tegund o.fl.
Vefurinn er til í nokkrum löndum og mest hef ég notað þýska og svissneska vefinn.
Áhugaverðar vefsíður um húsbíla

Þýskur vefur um allt milli himins og jarðar um húsbíla og húsbílaferðir í Evrópu. Ýmsar greinar og fróðleikur um húsbíla.

Söluvefur með alls konar vörur fyrir húsbíla og útilegur. Þarna er einnig mikið úrval af húsbílainnréttingum fyrir þau sem vilja innrétta bílinn sinn sjálf.








